Már og Iva á toppinn með Barn
Vinsældir lagsins Barn, í flutningi Keflvíkingingsins Más Gunnarssonar og Ívu Adrichem virðast engan endi ætla að taka, en lagið trónir nú á toppi vinsældalista Bylgjunnar.
Már og Þórir Baldursson sáu um útsetningu á laginu sem hefur auk þess að vera mikið spilað á útvarpsstöðvum fengið gríðarlegt áhorf á streymisveitunni Youtube.