Nýjast á Local Suðurnes

Lést af sárum sínum eftir að hafa verið bjargað úr brennandi húsi

Aldraður karlmaður lést af sárum sínum á Landspítalanum síðastliðinn föstudag eftir að honum hafði verið bjargað úr brennandi húsi við Hlíðarveg í Reykjanesbæ síðdegis þann sama dag.

Þetta hefur Vísir.is eftir Sveinbirni Halldórssyni, lögreglufulltrúa hjá lögreglunni á Suðurnesjum. Hann segir eldsupptök ekki alveg ljós en talið að maðurinn hafi kveikt á kerti og mögulega kviknað í út frá því. Lokaniðurstaða liggi þó ekki fyrir og málið sé enn í rannsókn.