Nýjast á Local Suðurnes

Leikskólinn í Drekadal verður Leikskólinn Drekadal

Til stendur að opna nýjan leikskóla í Dalshverfi III næsta haust. Leikskólinn hefur haft vinnuheitið Drekadalur sem hefur náð að festa sig í sessi og virðist vera almenn ánægja með nafnið. Þeir sem hafa komið að undirbúningi lóðarinnar sjá til að mynda fyrir sér dreka á lóðinni.

Í fundargerð menntaráðs kemur fram að nýráðinn leikskólastjóri styðji tillögu um nafnið Drekadalur og sjái mörg tækifæri tengd því. Nafnið er til þess fallið að ýta undir ímyndunarafl og sköpunargleði barna og hjálpa starfsfólki, börnum og foreldrum að skapa sannkallaðan ævintýraheim í hjarta Dalshverfis III.

Menntaráð leggur því til að nýr leikskóli í Dalshverfi III fái nafnið Drekadalur.