Nýjast á Local Suðurnes

Holtaskóli sigraði Skólahreysti

Holtaskóli í Reykjanesbæ sigraði Skólahreysti sem haldin var í Mosfellsbæ um síðustu helgi.

Tólf skólar kepptu til úrslita, 8 skólar sem höfðu sigrað sinn riðil í undakeppninni og 4 skólar sem höfðu verið stigahæstu skólarnir í 2. sæti. Í liði Holtaskóla voru þau Svanur Bergvins Guðmundsson sem keppti í upphífingum og dýfum, Auður Eyfjörð Ingvarsdóttir keppti í armbeygjum og hreystigreip og í hraðabrautinni kepptu þau Benedikt Árni Hermannsson og Elva Björg Ragnarsson. Varamenn voru þau Mikael Fannar Arnarsson og Heiðrún Lind Sævarsdóttir.

Auður Eyfjörð tók 44 armbeygjur og hékk í 2,49 sekúndur. Svanur Bergvins stóð uppi sem sigurvegari í bæði upphífingum og dýfum, en hann tók 65 upphífingar og 63 dýfur. Benedikt Árni og Elva Björg unnu hraðaþrautina og fóru brautina á 2,04 mínútum.