Nýjast á Local Suðurnes

Grunnskólarnir fresta árshátíðum

Njarðvíkurskóli, Akurskóli og Háaleitisskóli hafa tilkynnt um frestanir á árshátíðum sem fyrirhugaðar voru á næstunni. Búast má við að aðrir skólar fylgi í kjölfarið.

Þessi ákvörðun er tekin í samráði við fræðsluyfirvöld og neyðarstjórn Reykjanesbæjar og er tilgangurinn sá að draga eins og kostur er úr ónauðsynlegum fjölmennum samkomum.

Foreldrum er bent á að fylgjast með á heimasíðum skólanna varðandi breytingar á skólastarfi vegna samkomubanns sem tekur gildi aðfaranótt næstkomandi mánudags.

Heimasíður grunnskólanna í Reykjanesbæ:

AkurskóliHeiðarskóliHoltaskóliHáaleitisskóliMyllubakkaskóliNjarðvíkurskóli, Stapaskóli

Heimasíður grunnskólanna í Suðurnesjabæ:

Sandgerdisskoli.isGerðaskóli

Heimasíða grunnskólans í Grindavík

Heimasíða grunnskólans í Vogum