Fríhöfnin segir fleirum upp störfum
Nokkrum starfsmönnum verður sagt upp hjá Fríhöfninni á Keflavíkurflugvelli á næstu dögumvegna vandræða íslensku flugfélaganna, en sex starfsmönnum var sagt upp strax í kjölfar gjaldþrots WOW-air.
Ekki fæst staðfest hversu mörgum til viðbótar við þessa sex verði sagt upp. Um 200 manns starfa hjá fyrirtækinu.