Nýjast á Local Suðurnes

Eysteinn nýr skólastjóri

Eysteinn Þór Kristinsson hefur verið ráðinn til að gegna starfi skólastjóra Grunnskóla Grindavíkur. Eysteinn býr yfir víðtækri og yfirgripsmikilli kennslu- og stjórnunarreynslu, segir í tilkynningu á vef Grindavíkurbæjar.

Hann hefur starfað hjá Nesskóla í Neskaupstað í rúm 30 ár og hefur hann gegnt stöðu skólastjóra síðustu þrjú árin. Árin áður var hann starfandi aðstoðarskólastjóri, deildarstjóri og kennari hjá skólanum

Eysteinn er menntaður íþróttakennari frá Íþróttakennaraskóla Íslands ásamt því að hafa lokið B.Ed gráðu frá Háskóla Íslands og Diplómu í stjórnun menntastofnana frá sama skóla.

Eysteinn Þór mun hefja störf við skólann hinn 1. ágúst nk.