sudurnes.net
Eysteinn nýr skólastjóri - Local Sudurnes
Eysteinn Þór Kristinsson hefur verið ráðinn til að gegna starfi skólastjóra Grunnskóla Grindavíkur. Eysteinn býr yfir víðtækri og yfirgripsmikilli kennslu- og stjórnunarreynslu, segir í tilkynningu á vef Grindavíkurbæjar. Hann hefur starfað hjá Nesskóla í Neskaupstað í rúm 30 ár og hefur hann gegnt stöðu skólastjóra síðustu þrjú árin. Árin áður var hann starfandi aðstoðarskólastjóri, deildarstjóri og kennari hjá skólanum Eysteinn er menntaður íþróttakennari frá Íþróttakennaraskóla Íslands ásamt því að hafa lokið B.Ed gráðu frá Háskóla Íslands og Diplómu í stjórnun menntastofnana frá sama skóla. Eysteinn Þór mun hefja störf við skólann hinn 1. ágúst nk. Meira frá SuðurnesjumHaraldur Axel ráðinn skólastjóri HeiðarskólaBryndís Jóna ráðin skólastjóri HeiðarskólaTveir nýir framkvæmdastjórar til HS OrkuBjörg Erlingsdóttir ráðin sviðsstjóri frístunda- og menningarsviðsJón Haukur ráðinn aðstoðarskólastjóri StapaskólaKristinn nýr framkvæmdastjóri hjá HS OrkuLánasjóður greiðir arð – Tugir milljóna til SuðurnesjaJólagjafir Suðurnesjafyrirtækja – Gjafakortin vinsælustGróa ráðin skólastjóri StapaskólaHelga Hildur ráðin skólastjóri Holtaskóla