Bókasafnið flutt í Hljómahöll

Bókasafn Reykjanesbæjar hefur flutt í nýtt og betra húsnæði í Hljómahöll, þar sem lögð er áhersla á að skapa notalegt og fjölbreytt rými fyrir alla aldurshópa.
Framkvæmdir og flutningar hafa gengið vel og mun bókasafnið deila rými með Rokksafninu á fyrstu hæð hússins, segir í tilkynningu, en verður jafnframt með þrjú aðskilin rými á annarri hæð, hnokkadeild, barnadeild og ungmennadeild. Vert er að nefna að ný og uppfærð sýning Rokksafnsins verður ekki tilbúin fyrr en á nýju ári.
Bókasafnið og Rokksafnið verða opin alla virka daga frá kl. 9:00 til 18:00 og um helgar frá kl. 10:00 til 17:00. Þá er einnig gert er ráð fyrir að bæta við kvöldopnun frá og með haustinu.