Atvinnuleysi enn mest á Suðurnesjum

Atvinnuleysi var mest á Suðurnesjum í janúar eða 8,9%, sem er á svipaðri línu og í fyrri mánuði.

Í janúar fjölgaði atvinnulausum mest í ferðaþjónustu eða um 193. Þar á eftir var fjölgunin mest í verslun og vöruflutningum eða 81.

Vinnumálastofnun áætlar að atvinnuleysi meðal erlendra ríkisborgara hér á landi hafi verið 10,6% í janúar samanborið við 2,7% hjá Íslendingum.

Alls komu inn 168 ný störf sem auglýst voru í vinnumiðlun Vinnumálastofnunar í janúar.