Nýjast á Local Suðurnes

112 þúsund hafa skellt sér í sund

Gestum í Sundmiðstöð/Vatnaveröld fjölgaði um 17.922 gesti milli áranna 2018 og 2019. Á tímabilinu janúar til júní árið 2018 voru gestir samtals 94.278 en á þessu ári er aðsóknartalan á sama tímabili samtals 111.900. Þetta gerir fjölgun um 19% á milli ára.

Sumaropnun er nú í gildi í Sundmiðstöð/Vatnaveröld til 20. ágúst næstkomandi, opið er frá klukkan 6:30 til 21:30 mánudaga til föstudaga og frá klukkan 9:00 til 18:00 laugardaga og sunnudaga.