Fyrrverandi sparisjóðsstjóri neitaði sök við þingfestingu
Geirmundur Kristinsson, fyrrverandi sparisjóðsstjóri Sparisjóðs Keflavíkur neitaði sök við þingfestingu máls sem héraðssaksóknari höfðaði gegn honum vegna meintra umboðssvika með því að hafa misnotað aðstöðu sína hjá sparisjóðnum með lánveitingum til einkahlutafélaga.
Eins og áður hefur komið fram nema fjárhæðirnar í ákærunni tæpum átta hundruð milljónum króna.
Í frétt mbl.is um málið kemur fram að frestur til að skila greinargerð í málinu hafi verið gefinn til 18. maí. Þá kemur einnig fram að brotin geti varðað allt að sex ára fangelsi.