Nýjast á Local Suðurnes

Rafn Markús leikur með Njarðvíkingum á ný

Rafn Markús Vilbergsson er gengin til liðs við Njarðvíkinga á ný. Rafn hefur æft með liðinu í vetur og tekið þátt í æfingaleikjum en er nú komin með keppnisleyfi. Hann verður væntanlega í hópnum á morgun gegn Vængjum Júpiters í fyrsta leik Lengjubikarsins.

Rafn Markús gekk fyrst til liðs við Njarðvik sumarið 2005 frá Val, en hann er uppalinn Víðismaður. Frá 2005 til 2013 lék hann yfir 200 leiki með Njarðvík í öllum keppnum. Hann tók að sér þjálfun meistaraflokks Víðis haustið 2013 og þjálfaði liðið með góðum árangri til ársins 2015.