Nýjast á Local Suðurnes

Grindavíkurstúlkur leika til úrslita á morgun – Hafa þegar tryggt sér sæti í Pepsí-deildinni

Leikið verður til úrslita í 1. deild kvenna í knattspyrnu á Grindavíkurvelli á morgun, þriðjudaginn 27. september klukkan 16:00. Grindavík mætir þar liði Hauka, sem lögðu Keflvíkinga að velli í undanúrslitunum, en bæði liðin hafa þegar tryggt sér sæti í Pepsi-deildinni að ári.

Veðurspáin fyrir morgundaginn er fín, þanni að það er tilvalið að skella sér á völlinn í Grindavík strax eftir vinnu og hvetja stelpurnar áfram til sigurs.