Samfélagslöggan heimsótti Stapaleikskóla og færði börnunum bangsa

Fulltrúar frá samfélagslögreglu komu færandi hendi í heimsókn til yngstu nemendanna í Stapaleikskóla síðastliðinn þriðjudag og gáfu börnunum bangsa sem nefnist Blær, en hann er mikilvægur hluti af Vináttu, forvarnarverkefni Barnaheilla gegn einelti.
Heimsókn samfélagslögreglunnar var liður í því að efla tengsl lögreglu við ungt fólk og færa lögregluna nær samfélaginu. Markmiðið er að skapa jákvæð tengsl strax á unga aldri og byggja upp traust milli lögreglu og barna. Þannig er vonast til að börnin finni fyrir öryggi og treysti sér til að leita til lögreglunnar ef þau þurfa á aðstoð að halda.

Blær, sem börnin fengu að kynnast, er táknmynd vináttunnar í verkefninu. Með honum fylgdu litlir hjálparbangsar sem hver nemandi fékk til að minna á mikilvægi vináttu og samstöðu. Vináttuverkefnið byggir á fjórum mikilvægum gildum: að sýna umburðarlyndi með því að viðurkenna fjölbreytileikann og koma fram við aðra af virðingu, að bera virðingu með því að taka tillit til allra í hópnum og virða ólíkt hátterni, að sýna umhyggju með áhuga, samkennd og hjálpsemi, og að tileinka sér hugrekki með því að þora að láta í sér heyra og bregðast við óréttlæti.
Hvert barn á sinn bangsa sem er geymdur í leikskólanum og verður hluti af daglegu starfi þar til þau útskrifast, en þá fá þau að taka Blæ með sér heim sem minningu um vináttu og góða samveru.

Börnin tóku á móti heimsókninni með gleði og fögnuðu nýju vinunum sínum og sýndu Blæ strax mikinn áhuga. Heimsókn samfélagslögreglunnar og kynning á Blæ er fallegt dæmi um hvernig ólíkir aðilar geta sameinast í því að efla félagsfærni barna og skapa öruggara og betra samfélag fyrir alla.
Þegar lögreglan kvaddi eftir heimsóknina voru margir litlir bangsar komnir í faðmlag og ekki spurning að Blær átti þegar nýja og trausta vini í Stapaleikskóla. Reykjanesbær fagnar verkefnum sem þessum sem leggja grunn að góðum gildum og sterkum samfélagsanda.