Reynslubolti til Njarðvíkur
Gríski miðherjinn Fotios Lampropoulos hefur samið við körfuknattleiksdeild Njarðvíkur og mun leika með liðinu á komandi tímabili.
Frá þessu er greint á Körfunni.is, þar segir að Lampropoulos sé 37 ára gamall og 207 sentímetrar á hæð. Kappinn lék síðast með Al-Sadd í Katar. Hann er afar reynslumikill og hefur til að mynda leikið í spænsku 1. deildinni í fjölda ára.