Öllu flugi frestað vegna sprengjuhótunar
Fraktflugvél var lent á Keflavíkurflugvelli eftir að hótun barst um að sprengja væri um borð í vélinni. Þetta staðfestir Úlfar Lúðvíksson lögreglustjóri á Suðurnesjum í samtali við mbl.is.
Vegna þessa hefur allri umferð til og frá flugvellinum verið frestað, og flugvélum sem á leið voru yfir Atlantshafið hefur mörgum verið snúið aftur við. Þá hringsóla sumar við landið.
Samkvæmt heimildum mbl.is var flugvélin á leið frá Köln í Þýskaland til Kentucky-ríkis í Bandaríkjunum þegar að sprengjuhótun barst. Var flugvélinni þá snúið við og lent á Keflavíkurflugvelli. Segir á vef mbl.is
Fraktfluvélin lenti rúmlega ellefu á vellinum og standa aðgerðir lögreglu nú yfir. Töluverður viðbúnaður er á Keflavíkurflugvelli.