Mjög góð þátttaka í Heilsu- og forvarnarviku
Mjög góð þátttaka var meðal bæjarbúa í Heilsu- og forvarnarviku í Reykjanesbæ. Þetta var í fimmtánda sinn sem Heilsu-og forvarnarvikan var haldin í sveitarfélaginu.
Stofnanir Reykjanesbæjar, fyrirtæki og einstaklingar buðu upp á fjölbreytta og skemmtilega dagskrá. Yfir 100 manns mættu til að mynda í heilsufarsmælingu Samtakahópsins og BS, góð mæting var á fyrirlestur Ebbu Guðnýjar og mikið áhorf á rafrænu fyrirlestrana sem voru í boði svo eitthvað sé nefnt, segir í tilkynningu á vef Reykjanesbæjar.
Heilsu- og forvarnarvika Reykjanesbæjar verður svo haldin í 16. sinn 2. október til 8. október 2023.