Lýsi kaupir Ice Fish
Lýsi hf. hefur gengið frá kaupum á öllu hlutafé í Ice Fish ehf. í Sandgerði. Helstu markaðir Ice fish eru einkum í Evrópu og Ameríku, en auk þess er hluti af afurðunum seldur til Asíu.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá Lýsi hf., sem birt er á vef mbl.is þar segir að Ice Fish ehf. sé rótgróinn birgir hágæðahráefna úr fiskafurðum sem nýtt séu m.a. í loðdýra- og gæludýrafóður auk manneldis o.fl. Hráefni félagsins sé aðallega unnið úr hvítum fiski eins og þorski, ýsu og flatfiski, auk lax og bleikju. Þá býður Ice Fish einnig upp á fiskhúð til gelatín- og kollagenframleiðslu.
Fyrrum eigendur Ice Fish munu starfa áfram hjá fyrirtækinu.