Nýjast á Local Suðurnes

Lögregla ræddi við ungan innbrotsþjóf

Lögreglunni á Suðurnesjum barst í gærdag tilkynning um innbrot í Vélsmiðju Sandgerðis. Hinn óboðni gestur hafði komist inn með því að brjóta rúðu í húsnæðinu. Fjármunir höfðu verið teknir úr fyrirtækinu en ekki var vitað með vissu um hve háa fjárhæð var að ræða.

Í tilkynningu frá lögreglu kemur fram að haft hafi verið upp á geranda sem reyndist vera ungur að árum og var forráðamönnum hans svo og barnaverndarnefnd gert viðvart, auk þess sem lögregla ræddi við hann.