Nýjast á Local Suðurnes

Lögregla með klippur á lofti

Þrátt fyrir annasama viku gáfu lögreglumenn á Suðurnesjum sér tíma til að fjarlægja skráningarnúmer af átta bifreiðum sem ýmist voru óskoðaðar eða ótryggðar, auk þess sem nokkuð var um að lögreglan hefði afskipti af réttindalausum ökumönnum um helgina. Þeir höfðu ýmist verið sviptir ökuréttindum eða aldrei öðlast þau.

Þá voru nokkrir stöðvaðir vegna gruns um að þeir ækju undir áhrifum vímuefna.

Loks voru svo sex kærðir fyrir of hraðan akstur