Leita að nýjum rekstraraðila mötuneytis Nesvalla

Reykjanesbær leitar að nýjum rekstraaðila framleiðslueldhúss og mötuneytis á Nesvöllum. Óskað er eftir viðræðum við áhugasama aðila (matráð eða matreiðslumann) um rekstur fullbúins framleiðslueldhúss og veitingasalar í þjónustumiðstöðinni, Njarðarvöllum 2 í Reykjanesbæ (Nesvöllum).

Verkefnið snýst um að framleiða hádegismat fyrir aðra en íbúa hjúkrunarheimilanna.

Í dag samanstendur hópur viðskiptavina af eldri íbúum Reykjanesbæjar, sem fá heimsendan mat 7 daga vikunnar, en 5 daga vikunnar eru það skjólstæðingar dagdvalar, starfsfólk og aðrir viðskiptavinir sem koma í þjónustumiðstöðina í hádeginu.

Mögulega er hægt að fjölga í hópi viðskiptavina ef áhugi er fyrir hendi.

Frekari upplýsingar veitir Kjartan Már Kjartansson, bæjarstjóri, netfang; baejarstjóri@reykjanesbaer.is

Áhugasemir aðilar sendi umsóknir á innkaupastjori@reykjanesbaer.is fyrir 10. nóv. nk.