Nýjast á Local Suðurnes

Íbúafundur um fjárhagsáætlun Sandgerðisbæjar

Íbúafundur um fjárhagsáætlun Sandgerðisbæjar fyrir árin 2016-2019 verður haldinn að Miðnestorgi 3, í fundarsal Vörðunnar á fyrstu hæð í kvöld klukkan 20. Fundurinn er haldinn í samræmi við 58. gr. um stjórn og fundarsköp Sandgerðisbæjar, segir á vef sveitarfélagsins, en þar segir einnig:

„Til þess að veita íbúum upplýsingar um málefni sem varða þá með almennum hætti heldur bæjarstjórn borgarafund eftir fyrstu umræðu í bæjarstjórn um fjárhagsáætlun og gerir grein fyrir áherslum áætlunarinnar.“

 

Á fundinum verður farið yfir fjárhagsáætlunina og mun íbúum gefast tækifæri til þess að kynna sér rekstur bæjarfélagsins og koma sínum sjónarmiðum um áætlunina á framfæri.