sudurnes.net
Íbúafundur um fjárhagsáætlun Sandgerðisbæjar - Local Sudurnes
Íbúafundur um fjárhagsáætlun Sandgerðisbæjar fyrir árin 2016-2019 verður haldinn að Miðnestorgi 3, í fundarsal Vörðunnar á fyrstu hæð í kvöld klukkan 20. Fundurinn er haldinn í samræmi við 58. gr. um stjórn og fundarsköp Sandgerðisbæjar, segir á vef sveitarfélagsins, en þar segir einnig: „Til þess að veita íbúum upplýsingar um málefni sem varða þá með almennum hætti heldur bæjarstjórn borgarafund eftir fyrstu umræðu í bæjarstjórn um fjárhagsáætlun og gerir grein fyrir áherslum áætlunarinnar.“ Á fundinum verður farið yfir fjárhagsáætlunina og mun íbúum gefast tækifæri til þess að kynna sér rekstur bæjarfélagsins og koma sínum sjónarmiðum um áætlunina á framfæri. Meira frá SuðurnesjumÍbúafundur í SandgerðiHlutfallslega fjölgar íbúum mest í VogumMikill áhugi á Græna iðngarðinum í HelguvíkBlái herinn fær rúma milljón frá Umhverfis- og auðlindaráðuneytiÍbúafundur vegna mengunar verður haldinn í Stapa í kvöld75 kaupsamningum um fasteignir þinglýst í júlíFjölgun í tilkynningum til barnaverndarÍbúafundur um fjárhagsáætlun – Tækifæri til að koma sjónarmiðum sínum á framfæriTveir Keflvíkingar með verðlaun á Evrópumóti í taekwondoFeðginin Jana María og Guðmundur Hreinsson í Hljómahöll