Hringsólaði yfir Reykjanesi og beið færis til að lenda á Keflavíkurflugvelli
Farþegaþota SAS, á leið til Keflavíkurflugvallar frá Gardermoen-flugvelli við Ósló, hringsólaði yfir Reykjanesi í tæpa klukkustund í morgun vegna veðurs. Lending var áætluð klukkan 11.45 fyrir hádegi, en hún tafðist töluvert vegna ofsaveðursins.
Á vef mbl.is kemur fram að vélin hafi lent klukkan 12.42 og að um hefðbundið verklag væri að ræða þegar flugstjóri mæti aðstæður þannig að þær henti ekki til lendingar.
Guðni Sigurðsson upplýsingafulltrúi Isavia segir í samtali við mbl.is að ekki hafi verið tekin ákvörðun um að vísa flugvélum á aðra flugvelli.
„Þetta er hefðbundið verklag. Flugstjórinn metur það þannig að andstæður henti ekki til lendingar, hringsólar og bíður þar til færi gefst,“ segir Guðni.
Önnur þota, á leið til landsins frá Gatwick, lagði þá einnig nokkra lykkju á leið sína vegna veðurofsans, en lenti um tuttugu mínútur í eitt.