Nýjast á Local Suðurnes

Hættustigi lýst yfir á Keflavíkurflugvelli

Flug­vél á leiðinni frá Frankfurt til Chi­cago lenti á Kefla­víkur­flug­velli fyrir á níunda tímanum. Hættu­stigi var lýst yfir á Kefla­víkur­flug­velli fyrir lendinguna þegar flug­menn flutninga­vélar Air At­lanta til­kynntu um að hugsan­lega væri eldur laus um borð í vélinni.

Vísirhefur eftir Gretti Gauta­syni, stað­gengli upp­lýsinga­full­trúa hjá Isavia, að upp hafi komið merki um vélar­truflun og því var á­kveðið að lenda vélinni til að ganga úr skugga um að allt væri í lagi. Starfs­menn flug­vallarins hafi brugðist rétt við og ræst út við­eig­andi hættu­stig.

Vélin er af gerðinni Boeing 747, búið er skoða hana og hefur neyðar­stigi verið af­létt.