Fríhöfnin segir upp þrjátíu manns
Fríhöfnin hefur sagt upp 30 af 169 starfsmönnum. Auk þess var 100 til viðbótar boðið áframhaldandi starf en í lægra starfshlutfalli.
Þá verða engar sumarráðningar í framlínustörfum hjá Isavia í ár vegna áhrifa COVID-19 faraldursins.