Nýjast á Local Suðurnes

Boða umbætur í Reykjanesbæ

Umbót er nýtt framboð sem býður fram í Reykjanesbæ í komandi sveitarstjórnarkosningum.

Margrét Þórarinsdóttir bæjarfulltrúi leiðir listann. Í öðru sæti er varabæjarfulltrúinn Gunnar Felix Rúnarsson og í þriðja sæti er Rannveig Erla Guðlaugsdóttir alþjóðafræðingur og fyrrum kennslustjóri hjá Keili. Í fjórða sæti er Úlfar Guðmundsson lögmaður.

Umbót er nýtt stjórnmálaafl í Reykjanesbæ með reyndu fólki sem leggur áherslu á raunverulegar umbætur til hagsbóta fyrir samfélagið, segir í tilkynningu.

Framboðslisti Umbótar:

  1. Margrét Þórarinsdóttir
    Bæjarfulltrúi og flugfreyja
  2. Gunnar Felix Rúnarsson
    Verslunarmaður og varabæjarfulltrúi
  3. Rannveig Erla Guðlaugsdóttir
    Aljóðafræðingur og fyrrum kennslustjóri hjá Keili
  4. Úlfar Guðmundsson
    Lögmaður
  5. Jón Már Sverrisson
    Vélfræðingur og rafvirki
  6. Kristbjörg Eva Halldórsdóttir
    Flugfreyja
  7. Michal Daríusz Maniak
    Framkvæmdastjóri
  8. Vilhjálmur Kristinn Eyjólfsson
    Stuðningsfulltrúi
  9. Karen Guðmundsdóttir
    Húsmóðir
  10. Þorvaldur Helgi Auðunsson
    Verkfræðingur
  11. Tara Lynd Pétursdóttir
    Háskólanemi
  12. Júlíana Þórdís Stefánsdóttir
    Kerfisstjórnandi
  13. Una Guðlaugsdóttir
    Fulltrúi hjá Vinnumálastofnun
  14. Harpa Björg Sævarsdóttir
    Framkvæmdastjóri
  15. Rúnar Lúðvíksson
    Eftirlaunaþegi