Bílvelta á Reykjanesbraut
Bílvelta varð á Reykjanesbrautinni um miðjan dag í gær, bifreið sem var á leið úr Reykjanesbæ í átt til Reykjavíkur valt á vegarkaflanum skömmu áður en vegurinn verður einfaldur. Bifreiðin snérist á hvolf en hélst þó á veginum.
Að sögn slökkviliðsins á höfuðborgarsvæðinu voru fjórir í bílnum og voru þeir allir fluttir á Landspítalann til skoðunar. Talið var að meiðsl þeirra væru minni háttar.