Benda foreldrum á að fylgjast með veðurspám – Allt að 40 m/s í hviðum
Veðurstofa Íslands spáir mjög slæmu veðri á morgun, föstudaginn 24. febrúar. Búast má við að vindhraði nái víða 20-28 m/s á sunnan- og vestanverðu landinu eftir hádegi á morgun, ásamt mjög hvössum vindhviðum, allt að 40 m/s.
Veðrinu fylgir talsverð úrkoma, fyrst snjókoma en síðan slydda eða rigning. Viðbúið er að skyggni verði víða slæmt og ferðaveður sums staðar mjög slæmt, að því er segir í tilkynningu á vefsíðu Veðurstofunnar.
Flestir grunnskólar á Suðurnesjum hafa nýtt samfélagsmiðlana til þess að benda foreldrum á að fylgjast með veðurspám á morgun, þar sem versta veðrið muni að öllum líkindum ganga yfir á þeim tíma sem börn halda heim á leið. Þá er nemendum Fjölbrautaskólans einnig bent á að fylgjast með spám.