Nýjast á Local Suðurnes

Hætta við stækkun verksmiðju

Linde Gas ehf., áður Ísaga ehf., hefur tilkynnt sveitarfélaginu Vogum um að ekki verði af uppbyggingu áfyllingarstöðvar á lóð við verksmiðju sveitarfélagsins, en viljayfirlýsing þess efnis var undirrituð árið 2016.

Fram kom á fundi bæjarráðs að ákvæðum yfirlýsingarinnar hafi því verið aflétt og að bæjarstjóra hafi verið falið að rita forstjóra félagsins bréf þar sem lýst er yfir vonbrigðum með niðurstöðuna auk þess að óska eftir samtali um næstu skref málsins.

Áhugavert efni: