Víðir í toppbaráttuna eftir sigur á Njarðvík
Heimavöllurinn ætlar að reynast Njarðvíkingum erfiður þetta tímabilið, en liðið tapaði, 1-3, gegn grönnum sínum í Víði Garði þegar þeir síðarnefndu kíktu í heimsókn í kvöld.
Víðsmenn voru sterkari aðilinn í kvöld, þó Njarðvíkingar ættu ágæta spretti inn á milli, Helgi Þór Jónsson kom gestunum úr Garði yfir á 32. mínútu en Atli Freyr Ottesen Pálsson jafnaði fyrir Njarðvík á 37. mínútu. Patrik Snær Atlason kom Víði hins vegar í 2-1 á 90. mínútu og Helgi skoraði sitt annað mark í uppbótartíma.
Víðir hefur því blandað sér í toppbaráttun af krafti, en liðið situr í fjórða sætinu, tveimur stigum á eftir Njarðvíkingum sem sitja enn um sinn á toppnum með 17 stig.