Nýjast á Local Suðurnes

Rise til Keflavíkur – Ætlað að styrkja liðið í baráttunni framundan

Knattspyrnudeild Keflavíkur hefur bætt við sig leikmanni í félagaskiptaglugganum en sá heitir Lasse Rise og kemur frá Lyngby í Danmörku.

Lasse er 31 árs gamall og lék með unglingaliði Bröndby áður en hann fór yfir til BK Avarta, síðan hefur hann spilað með Lyngby BK, Randers FC og Esbjerg FB.

Knattspyrnudeild Keflavík fagnar komu hans og er honum ætlað það hlutverk að styrkja liðið í þeirri baráttu sem framundan er í því að komast upp í Pepsideild, segir í tilkynningu.