Holtaskóli vann Skólahreysti – Stóru-Vogaskóli í þriðja sæti
Holtaskóli sigraði í Skólahreysti 2016, annað árið í röð. Stóru-Vogaskóli lenti í þriðja sæti. Þetta er í fimmta sinn á síðustu sex árum sem Holtaskóli ber sigur úr býtum í keppninni.
Úrslit keppninnar voru sýnd í beinni útsendingu á RÚV í kvöld. Holtaskóli fékk 63,5 stig í keppninni og 250 þúsund krónur í verðlaunafé frá Landsbankanum.
Í öðru sæti lenti Síðuskóli frá Akureyri með 55 stig og því þriðja varð Stóru-Vogaskóli frá Vogum með 49,5 stig.