Nýjast á Local Suðurnes

Blása til veislu í tilefni afmælis – Öllum bæjarbúum boðið að taka þátt

Miðvikudaginn 7. mars nk. verður Bókasafn Reykjanesbæjar 60 ára. Bókasafnið er elsta stofnun bæjarins. Í tilefni þessa stórafmælis verður blásið til veislu frá klukkan 15.00 – 18.00 sem öllum bæjarbúum er boðið að taka þátt í.

Veisluhöldin fara að sjálfsögðu fram í Bókasafninu og vonandi komast sem flestir til að fagna þessum skemmtilegu tímamótum, segir í tilkynningu.