Vonast til að klára rannsókn á hnífstungumáli sem fyrst – Bíða eftir niðurstöðum tæknideildar
Rannsókn stendur enn yfir á hnífstunguárás sem átti sér stað þegar átök brutust út á milli tveggja hópa í Reykjanesbæ á nýársnótt. Átján ára piltur var stunginn fimm sinnum með hnífi og voru áverkarnir lífshættulegir. Tveir voru úrskurðaðir í gæluvarðhald vegna málsins, en þeim hefur verið sleppt úr haldi.
Lögregla bíður helst niðurstaða tæknideildar til þess að hægt sé að ljúka rannsókninni, segir Sveinbjörn Halldórsson, rannsóknarlögregumaður, í samtali við mbl.is. Um tuttugu manns hafa verið teknir í skýrslutöku vegna málsins og vonast lögregla til að klára rannsókn þess sem allra fyrst.