Nýjast á Local Suðurnes

Vilja nammi í leikskólann

Á dögunum komu í heimsókn á bæjarskrifstofurnar í Grindavík skólahópur leikskólans Króks og kynntu sér gang mála í bæjarfélaginu.

Krakkarnir skoðuðu starfsemi bæjarskrifstofunar ásamt því að sjá allar skrifstofurnar og reyndu fyrir sér hin ýmsu störf. Meðal þess sem þau óska eftir eru drekar og fleiri hvolpa í Grindavík, nammi í leikskólann, Rokkara á Sjóaran Síkáta ásamt hoppukastala. 

Greinilega á ferðinni krakkar sem vita hvað þau vilja! Segir í frétt á vef Grindavíkurbæjar.