Nýjast á Local Suðurnes

Verkfærum og dýrum reiðhjólum stolið

Umtalsverðu magni af verkfærum var stolið í vikunni þegar brotist var inn í verkstæði í Keflavík. Var meðal annars um að ræða borvélar, stingsög, verkfæratösku auk fleiri muna. Áætlað verðmæti verkfæranna er 4 – 500 þúsund krónur.  Talið er að kúben hafi verið notað til að spenna upp hurð til að komast inn á verkstæðið.

Lögreglan á Suðurnesjum rannsakar málið.

Þá var tilkynnt um stuld á þremur reiðhjólum. Tvö þeirra voru tekin úrt ólæstum bílskúr og er verðmæti hvors um sig um 86 þúsund krónur.