Stofna fé­lag at­vinnu­lífs­ins í Grinda­vík

Stofnfundur Félags atvinnulífsins í Grindavík verður haldinn föstudaginn 27. nóvember næstkomandi klukkan 12:00 í Gjánni í Grindavík.

Markmiðið með stofnun félagsins er að skapa öflugan og sjálfstæðan samstarfsvettvang fyrir atvinnulífið í Grindavík, efla tengsl milli fyrirtækja, standa vörð um sameiginlega hagsmuni og vinna saman að nýjum tækifærum og framtíðaruppbyggingu bæjarins, segir í tilkynningu á vef sveitarfélagsins.

Þá segir einnig að félagið verði vettvangur fyrir fyrirtæki úr ólíkum atvinnugreinum til að sameina krafta sína, móta sameiginlega sýn og vinna að verkefnum sem styrkja atvinnulífið og samfélagið í Grindavík.

Öll fyrirtæki, stór sem smá, einyrkja, stofnanir og félagasamtök sem tengjast Grindavík eru hvött til að mæta, kynna sér félagið og taka þátt í að móta starf þess frá upphafi.

Þá eru forsvarsmenn fyrirtækja hvött til að tilkynna sig á viðburðinn. Boðið verður upp á súpu í hádeginu.