Stærsta rafknúna vinnuvél landsins á Suðurnesjum
defaultVerktakafyrirtækið Ístak hefur tekið í notkun fyrstu 100% rafdrifnu stóru vinnuvélina sína og líklega stærstu rafknúnu vinnuvél sem er í notkun á Íslandi í dag.
Í tilkynningu á samfélagsmiðlum segir fyrirtækið að um sé að ræða LiuGong 870 HE hjólaskóflu, sem mun sinna ámokstri í Stapafellsnámu á Reykjanesi og leysa af hólmi eldri dísilknúna Volvo hjólaskóflu.

Með þessari breytingu má gera ráð fyrir allt að 34.000 lítra eldsneytissparnaði á ári, sem er stórt skref í átt að minni kolefnisspori.
Helstu upplýsingar um vélina:
- Þyngd: ~27 tonn
- Skóflustærð: 5,7 m³
- Rafhlaða: 423 kWh (LFP)
- Hleðsluhraði: 300 kW
- Ending rafhlöðu: 6–8 klst
Með innleiðingu rafknúinna vinnuvéla styrkir Ístak vegferð sína í átt að ábyrgum, umhverfisvænum og sjálfbærum rekstri.





















