Snarpur skjálfti við Fagradalsfjall
Snarpur jarðkjálfti reið yfir Reykjanesskagann og suðvesturhorn landsins klukkan 21.38 I kvöld. Upptökin voru líkt og undanfarið undir Fagradalsfjalli.
Skjálftinn mældist 3,5 að stærð, samkvæmt upplýsingum á vef Veðurstofunnar, en þar segir einnig að hann hafi fundist í Grindavík og á höfuðborgarsvæðinu.
Mjög þétt smáskjálftavirkni hófst um klukkan kortér í sjö í kvöld við Fagradalsfjall og mældust nokkrir skjálftar um þrír að stærð. Enn hefur þó ekki mælst gosórói undir fjallinu.