Nýjast á Local Suðurnes

Slæmrar aðstæður á gosstað

Slæmt veður er á svæðinu við Fagradalsfjall í augnablikinu og biðlar lögregla til fólks sem er statt þar að halda til baka frá svæðinu.

Tilkynning lögreglu:

ÁRÍÐANDI……..Mjög slæmt veður er á gos staðnum núna og biðjum við alla sem eru á ferðinni í átt að gosinu núna um að snúa strax við og halda í bíla. Samkvæmt spá mun veður versna næstu klukkustundir. Þetta eru mjög mikilvæg skilaboð og er ástandið á svæðinu að versna hvað varðar veður.