Óska eftir tilnefningum til umhverfisviðurkenninga

Umhverfis- og skipulagsráð Reykjanesbæjar óskar eftir tilnefningum til umhverfisviðurkenninga 2025. Íbúum gefst kostur á að senda inn tilnefningar um þá einstaklinga, garða, götur, svæði, stofnanir, félagasamtök eða fyrirtæki, sem þeim finnst koma til greina.
Ár hvert er veitt viðurkenning fyrir gróna garða, nýja garða og allt sem vel er gert. Einnig fyrir vel uppgerð eldri hús og undanfarin ár hafa verið veitt viðurkenning fyrir framlag til umhverfis og samfélags. Íbúar eru hvattir til að senda inn tilnefningu á Betri Reykjanesbær, fyrir 4. ágúst.
Á kortavef Reykjanesbæjar (https://www.map.is/reykjanesbaer/) er hægt að sjá hverjir hafa hlotið umhverfisviðurkenningar frá árinu 2000. Íbúar eru hvattir til að senda inn upplýsingar um viðurkenningar fyrir þann tíma.
Umhverfisviðurkenningar verða afhentar á Ljósanótt.


















