Nýjast á Local Suðurnes

Malbikað fyrir 100 milljónir króna í Reykjanesbæ

Rúmlega 100 milljónir króna hafa verið lagðar í malbikunarframkvæmdir í Reykjanesbæ í sumar auk þess sem Smáratún hefur algjörlega gengið í endurnýjun lífdaga, í samstarfi við HS Veitur. Allt burðarefni verður endurnýjað, allar lagnir sem og yfirborð götu. Þær framkvæmdir standa enn.

Þær götur sem hafa fengið nýtt malbiksyfirlag í Reykjanesbæ eru:

  • Veturgata, frá Túngötu að Heiðarbraut
  • Hringbraut, frá Aðalgötu að Skólavegi og frá gatnamótum við þjóðbraut
  • Tjarnargata frá Kirkjuvegi að Hringbraut
  • Vallarbraut, að leikskólanum Hjallatúni
  • Fitjabraut, frá Sjávargötu að Fitjabraut 30
  • Njarðarbraut, frá Bergási fram yfir gatnamót við Stekk

Þá hafa umtalsverðar endurbætur verið gerðar á malbiksyfirlagi Reykjanesbrautar í umsjón Vegagerðarinnar.