Loksins lokað
Breytingar verða á veitingaflórunni í flugstöð Leifs Eiríkssonar á næstunni. Rekstri þriggja veitingastaða verður lokað og nýir koma í staðinn. Kynningarfundur vegna þessa verður haldinn í Hörpu í dag.
Veitingöðum Nord, Loksins og Joe and the juice verður lokað og tvö ný veitingarými á annarri hæð í norðurbyggingu flugstöðvarinnar verða boðin út saman og möguleiki er á að þeim sem verður hlutskarpastur í útboðinu verði boðið að taka þriðja rýmið en það verður á öðrum stað í flugstöðinni, að því er fram kemur í Morgunblaðinu í dag.