Nýjast á Local Suðurnes

Lokanir og skert þjónusta hjá Reykjanesbæ

Lokanir og skert þjónusta vegna óveðurs föstudaginn 14. febrúar

Í ljósi þess að gefin hefur verið út rauð viðvörun fyrir okkar landssvæði fellur allt skólahald í leikskólum og grunnskólum Reykjanesbæjar niður á morgun, föstudaginn 14. febrúar. Sama gildir fyrir Tónlistarskóla Reykjanesbæjar.

Talið er að veðrið gangi niður um miðjan dag sem þýðir að ýmis önnur þjónusta raskast eða fellur niður fyrri hluta dags eða jafnvel allan daginn.

Allt skólahald grunn- og leikskólum auk tónlistarskólans fellur niður.
Sundmiðstöðin og önnur íþróttamannvirki verða lokuð, staðan tekin á hádegi.
Hæfingarstöðin verður lokuð
Dagdvöl aldraðra fellur niður
Heimaþjónusta verður skert

Almenningssamgöngur falla niður en staðan metin að nýju kl. 11.00 og gefin út ný tilkynning í framhaldinu. Ferð á leið 88 frá Grindavík fellur einnig niður á morgun og staðan endurmetin kl. 12.00.

Fólk er hvatt til þess að halda sig heima fyrri hluta dags og fylgjast vel með tilkynningum frá almannavörnum í fjölmiðlum.