Hluthafar United Silicon hafa að öllum líkindum tapað eignarhlut sínum
Ljóst er að leggja þarf United Silicon í Helguvík til aukið fé, svo bæta megi búnað og aðstöðu verksmiðjunnar þannig að hún standist þau framleiðslumarkmið og þær gæðakröfur sem settar hafa verið. Þetta kemur fram í árshlutareikningi Arion banka sem birtur var í dag.
Arion banki er langstærsti lánveitandi United Silicon, með átta milljarða króna útistandandi við félagið, þar með talið lánsloforð og ábyrgðir. Niðurfærsluþörf á þeim lánum er enn óljós og háð fjárhagslegri endurskipulagningu United Silicon. Í árshlutaskýrslunni kemur einnig fram að ljóst sé að núverandi hluthafar United Silicon hafa að öllum líkindum tapað eignarhlut sínum í félaginu, lánveitendur þess munu þurfa að gefa eftir hluta af kröfum sínum og aukið fjármagn þarf til svo að starfsemi verksmiðjunnar haldi áfram.