Nýjast á Local Suðurnes

Heimildarþættir um Varnarliðið á RÚV – Mikið af myndefni sem ekki hefur sést fyrr

Mynd: Facebook/varnarliðið

Sýning heimildarþáttaraðarinnar “VARNARLIÐIД, sem er í fjórum hlutum, hefst í Ríkissjónvarpinu sunnudaginn 7. janúar kl. 19.45 og stendur næstu þrjá sunnudaga þar á eftir. Þættirnir fjalla um sögu bandaríska varnarliðsins á Íslandi á árunum 1951-2006 og byggja á rannsóknum Friðþórs Eydal sem starfaði um árabil í aðalstöðvum varnarliðsins.

Í þáttunum koma fram margvíslegar áður óbirtar upplýsingar um starfsemi og tilgang herliðsins og mikið af myndefni sem ekki hefur sést fyrr. Viðtöl eru m.a. við innlenda og erlenda fræðimenn og rætt við fyrrum hermenn og íslenska starfsmenn.

 

Meðal nýrra upplýsinga í þáttunum er:

Keflavíkurflugvöllur lék stórt hlutverk í hernaðaráætlunum kjarnorkusprengjuflugflota Bandaríkjanna á sjötta áratugnum með samþykki íslenskra stjórnvalda. Á sjöunda og áttunda áratugnum varð megináherslan á gagnkafbátahernað ásamt stuðningi við nýja sóknarstefnu á norðurslóðum sem Bandaríkjaher tók upp á níunda áratugnum. Er þróuninni lýst í þáttunum ásamt mikilvægi herbækistöðva í landinu.

Skýrð er í fyrsta sinn hvernig starfrækslu kafbátaleitarflugsins frá Keflavíkurflugvelli var háttað og lýst rekstri mikilvægra stöðva til neðansjávarhlustunar og fjarskiptamiðunar, sem þóttu ómissandi við kafbátaleitina, ásamt fjarskipta- og staðsetningarkerfi fyrir bandaríska kjarnorkukafbáta.

Einnig er varpað nýju ljósi á samskipti stjórnvalda og mikilvæg hagsmunamál á borð við flugvallarreksturinn, björgunarmál og þætti innlendra aðila í þjónustu og verktöku fyrir varnarliðið.

Þá er ítarleg umfjöllun um líf og störf í herstöðinni og viðtöl við helstu samningamenn Íslands og Bandaríkjanna í langdregnum viðræðum um samdrátt og brotthvarf varnarliðsins.