Hefja byggingu 30 leiguíbúða

Fyrsta skóflustunga var tekin að 30 leiguíbúðum í sex húsum, sem leigufélagið Bjarg, byggir við Trölladal 1-11 í Reykjanesbæ þann 23. maí síðastliðinn. Áætlað er að fyrstu íbúðirnar verði tilbúnar í júlí 2026, en húsin verða afhent á sex mismunandi dagsetningum. Opnað verður fyrir umsóknir í október á þessu ári.

Íbúðirnar verða tveggja til fimm herbergja og eru í sex, tveggja hæða húsum, auk sameiginlegrar hjóla- og vagnageymslu. Gæludýrahald verður leyft í hluta íbúðanna á jarðhæð.