Nýjast á Local Suðurnes

Gosvirkni stöðug og gasmengun á Suðurnesjum

Gosvirkni hefur verið nokkuð stöðug í nótt frá því í gærmorgun. Áfram gýs úr einum gíg og rennur hraunið til austurs og dreifir úr sér á breiðunni innan við 1 km frá gígnum. Lítil eða hæg hreyfing er á ystu hraunjöðrum.

Í dag má gera ráð fyrir að gasmengun (SO2) berist til norðursvesturs árla dags og gæti hennar orðið vart í Reykjanes- og Suðurnesjabæ en þegar líður fram á daginn berst hún til norðurs og getur hennar orðið vart í Vogun, á Höfuðborgarsvæðinu, Borgarnesi og Akranesi, segir í tilkynningu frá Veðurstofu.

Gosmóða (SO4) hefur mælst víða á landinu í morgun sárið. Með vaxandi SA átt ætti að draga úr gosmóðu víða í dag en hægviðri er á föstudag og hún gæti gert vart við sig aftur.

Fylgjast má með loftgæðum á vef Umhverfis- og orkustofnunar, loftgaedi.is

Meðfylgjandi er mynd úr vefmyndavél sem sýnir virka gíginn kl. 03:40 í nótt.